Bilanatíðni eftir framleiðanda, fartölvur.
teitur | 01/03/2010Ein af algengari spurningum sem ég fæ er hvaða fartölvu sé best að kaupa. Það er mjög erfitt að svara þessu að einhverju viti þar sem þú færð yfirleitt það sem þú borgar fyrir.
Það sem helst má dæma gæði eftir er ábyrgðin sem framleiðandinn er með á tölvunni.
Tölvur með þriggja ára ábyrgð (eða meira) er hægt að treysta.
Það er vegna þess að framleiðandinn ætlar sér aldrei að borga fyrir ábyrgðarviðgerð, þær eru óhemju dýrar.
En að sjálfsögðu eru til tölur um bilanatíðni, en Það er erfitt að segja hversu réttar þessar tölur eru.
Hérna er ein frá SquareTrade sem er fyrirtæki í Bandaríkjunum sem veitir auka/lengri ábyrgð.

Í þessa könnun vantar framleiðendur, svo sem Fujitsu og Medion. Ég hef enga skýringu á hvers vegna þær vantar.